Smiðjuhátíðin í Tækniminjasafni Austurlands er haldin seinni partinn í júlí ár hvert. Hátíðin er skemmtileg og fræðandi fjölskylduhátíð. Á safnasvæðinu er hægt að skoða handverk og fylgjast með handverksmönnum vinna. Spennandi handverksnámskeið eru í boði á vegum safnsins, en undanfarin ár hafa t.d. eldsmíði, prent og bókverkagerð, málmsteypa, hnífasmíði o.fl. verið á dagskrá. Hátíðin endar með fjörugu bryggjuballi á Angrósbryggjunni.
Smiðjuhátíðin 2018 verður haldin helgina 27- 29 júlí.
Hafið samband við Tækniminjasafnið til að fá nánari upplýsingar um dagskránna í ár.
Tækniminjasafn Austurlands | Hafnargata 44 | 710 Seyðisfjörður | KORT
Við erum á: